Vista er að stækka
Vista er að leita eftir drífandi einstaklingi á rafmagnssviði
- Leitum að rafmagnsverkfræðingi, rafmagnstæknifræðingi eða rafmagnsiðnfræðingi.
- Starfið er fjölbreytt og þarf viðkomandi að geta unnið við hönnun, teikningu og samsetningu á mælabúnaði. Að auki þarf að fylgja verkefnum úr húsi með uppsetningu og prófunum.
- Vista er fjölskylduvænn vinnustaður þar sem við erum stolt af okkar verkum
- Við hvetjum jafnt einstaklinga með reynslu sem og nýútskrifaða til þess að sækja um. Nánari upplýsingar veitir hallur@vista.is
VISTA er leiðandi í orkueftirliti og sjálfvirkum mælikerfum. Meðal helstu viðskiptavina stofunnar má nefna Veðurstofu Íslands, Reykjavíkurborg, Landsvirkjun, Kópavogsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnes og Mosfellsbæ.
Tekið er á móti umsóknum á vista@vista.is
Umsóknarfrestur er til 8. mars og verður fyllsta trúnaðar gætt.