Svifryk
Hvað er í andrúmsloftinu sem við öndum að okkur ?
Andrúmsloftið samanstendur af blöndu af gastegundum. Í þurru lofti við meðalhita er nitur 78% þess og súrefni 21%. Afgangurinn eða 1% samanstendur af nokkrum gastegundum í litlu magni sem þó eru mikilvægar jörðinni. Auk þess eru í andrúmsloftinu ógrynni ýmis konar agna bæði í vökva- og í föstu formi. Stærð agnanna sem eru í andrúmsloftinu er mjög breytileg. Yfirleitt eru agnir á bilinu 10-15 µm (µm = míkrómetrar, 1 µm = 0,001 mm) í þvermál taldar til fallryks enda falla agnir af þessari stærð og stærri til jarðar nálægt mengunaruppsprettum
Hvað er svifryk ?
Agnir undir 10 µm teljast til svifryks (PM: Particulate Matter) enda geta þær borist um lengri veg fyrir áhrif vinda. Stærri agnir falla til jarðar nálægt mengunaruppsprettum en þær minni geta borist lengra með lofti og inn á íverustaði fólks. Svifryki er skipt í gróft svifryk, sem er á bilinu 2,5 – 10 µm, og fínt svifryk sem er undir 2,5 µm. Stundum er einnig talað um mjög fínt svifryk sem er undir 1 µm. Fínar svifryksagnir eru flestar af mannavöldum eins og frá bruna eldsneytis, sót, steinryk, málmryk, súlfat, kalk, salt, slit á malbiki og fleira. Grófari svifrykagnir eru flestar frá náttúrunni eins og frjókorn, eldgosi, sjávarúða ,sandi og silt.
Umhverfisáhrif eins og veðurskilyrði geta skapað mismunandi aðstæður fyrir myndun svifryks, dreifingu þess og þar með þau áhrif sem svifryk getur haft á umhverfið. Þar má nefna:
- Nagladekk valda sliti á malbiki og því mælist meira svifryk á veturna en á öðrum árstímum.
- Stillt og þurrt loft á veturna getur valdið því að ekki verði mikil hreyfing á loftinu sem hefur í för með sér að mengun getur safnast upp.
- Veruleg mengun getur fylgt mikilli umferð og þá helst við stórar umferðargötur og nálægð við iðnað.
- Mikið rok veldur oft að jarðvegur fýkur sem orsakar svifryk.
- Mikið blautviðri getur dregið úr svifryksmyndun þar sem ögnunum rignir niður.
Í reglugerð nr. 920/2016 kemur fram að markmið hennar sé að halda loftmengun af völdum brennisteinsdíoxíð, köfnunarefnisdíoxíð og köfnunarefnisoxíð, bensen, kolsýring, svifryk og blý í andrúmsloftinu utandyra í lámarki. Ákveðin viðmiðunarmörk hafa því verið sett fram til að fylgjast með styrk mengunarefna í andrúmsloftinu og eru þau misjöfn eftir tegundum. Efri mörkin eru 50 µg/m3 miðuð við meðaltalssólarhringsstyrk. Þessi mörk eru sett fram til þess að hægt sé að grípa til viðeigandi ráðstafna varðandi heilsuverndarmörk sem eiga að tryggja heilsu manna til lengri tíma.
Hvaða áhrif hefur svifryk á heilsu og líðan fólks?
Svifryk hefur verið tengt við margvíslega þætti er varða heilsu og líðan. Þrátt fyrir að svifryk innihaldi ekki alltaf eitruð efni, geta smáar agnir sem fólk andar að sér haft skaðleg áhrif á heilsu fólks. Svifryk hefur verið tengt við lungna-, hjarta- og æðasjúkdóma og krabbamein. Því smærra sem svifrykið er því lengra komast agnirnar niður í lungun og geta valdið meiri heilsuskaða.
Sót er mjög fínt ryk sem inniheldur ýmiss eiturefni. Það getur myndast við slit á malbiki. Þá losa díselmótorar þ.m.t dieselbifreiðar umtalsverðu sóti út í andrúmsloftið. Þar bindast skaðleg efni eins og brennisteinsdíoxíð (SO2) og brennisteinssýra H2SO4 við sótagnirnar. Malbik inniheldur einnig svonefnd PAH-efni (Poly Aromatic Hydrocarbons) þ.e. fjölhringja arómatísk kolvetnissambönd sem eru mjög heilsuspillandi.
Þar sem minnstu rykagnirnar geta borist niður í öndunarfærin valda þau mestum heilsuskaða. Áhrifin fara svo eftir því hve lengi og oft einstaklingur andar að sér menguðum og skaðlegum efnum úr loftinu. Almennt finna viðkvæmir hópar mest fyrir áhrifum svifryksins eins og aldraðir, börn og fólk með undirliggjandi öndunarfæra- og/eða hjartasjúkdóma en þessir hópar geta orðið fyrir miklum óþægindum sem geta leitt af sér langtímaáhrif þegar svifryksmengun er í hámarki.
Hvernig er unnt að fylgjast með svifryksmengun innandyra?
Það eru til mælar sem henta heimilum og vinnustöðum til að fylgjast með lofgæðum, raka og hita. Þeir koma að góðu gagni við að meta hvort eiturefni sé komin yfir skaðlegt mörk í nærumhverfi okkar. Vista Verkfræðistofa bíður upp á úrval af mælum, meðal annars:
- Awair Element – Innanhúss loftgæðamælir greinir svifryk og eiturefni í lofti innandyra. Þeir mæla fyrir rokgjörn lífræn efnasambönd í lofti ásamt hita og rakastigi, þá má greina hvort hugsanlega sé myglusveppur að vaxa í húsnæðinu. Þeir ná að mæla agnir af stærð 2,5 míkrómetra eða minni (PM 2.5#5).

- Awair Omni – Innanhúss loftgæðamælir er hannaður til að mæla og hafa eftirlit með loftgæðum hjá fyrirtækjum og stofnunum til að stuðla að heilbrigðum og öruggum loftgæðum á vinnustað. Þeir mæla rokgjörn lífræn efnasambönd í lofti ásamt hita og rakastigi, þá má greina hvort hugsanlega sé myglusveppur að vaxa í húsnæðinu. Þeir ná að mæla agnir af stærð 2,5 míkrómetra eða minni (PM 2.5#5).

- AQMesh – Harðgerður loftgæðamælir frá AQMesh til mælinga og eftirlits á loftgæðum utan- og innandyra. AQMesh getur mælt og haft eftirlit með allt að sex mismunandi gastegundum, svifryki/eindum, hljóði, vindhraða, vindátt og loftþrýstingi, hita -og rakastigi. Þeir ná að mæla agnir PM1#5 , PM 2.5#5, PM4#5 og PM10#5.

Hvað er hægt að gera til að draga úr svifryki
Stöðugar mælingar meðal annars hjá stórum umferðagötum gera okkur kleift að fylgjast með og gera ráðstafanir þegar mikið magn svifryks finnst í loftinu.
Draga má af því sem kom hér fram að ofan að með því að stuðla að minni notkun nagladekkja sé hægt að draga verulega úr svifryksmengun en aðrir áhættuþættir eru umferðaþungi og malbiksgerð. Hreinsun og rykbinding gatna dregur úr svifryki.
Á meðan svifryk finnst í lofti er því mikilvægt að ná að fylgjast með því innan-dyra og utan og hefur Vista upp á fjölmargar lausnir sem henta til mælinga á svifryki.