Internet hlutanna

Undanfarið hefur Internet hlutanna (e. Internet of Things/IoT) verið mikið í umræðunni og má segja hugtakið sé eitt af þessum „buzz” orðum sem allir ráðgjafar og sérfræðingar hafa verið að fjalla um á ráðstefnum undanfarin ár. Internet hlutanna er í raun mjög gamalt fyrirbæri. Fyrirtæki hafa verið að safna gögnum um rekstur eða ástanda búnaðar síðan iðnbyltingin hófst. Sá þáttur sem hefur í raun komið þessari nýju byltingu af stað er aðgengi að hröðu internet og tilkoma nýrrar tækni og fullkomnari mælibúnaðar. Allt þetta hefur orðið til þess að mun ódýrara er að mæla allt á milli himins og jarðar. Framfarir í fjarskiptum hafa líka skipt sköpum; 3G, 4G, Narrowband, LoRaWan og svo er 5G rétt handan við hornið!
Einstaklingar hafa tekið Interneti Hlutanna með opnum örmum og flestir hafa nú á heimilum sínum einhverskonar tæki sem skrá niður það sem þykir áhugavert. Hver er t.d. ekki að skrá niður hvað hann hleypur langt og hratt? Sjálfur er ég t.d. með loftgæðamæli frá Vista/Mælibúnaði á mínu heimili þar sem ég get fylgst með loftgæðum með tæki frá Awair. Þannig get ég séð hver mín loftvist er, eitthvað sem skiptir gríðarlega miklu máli þegar kemur að lífsgæðum okkar og heilsu.
Vista lausnir fyrir fyrirtæki
Við hjá Vista höfum verið að hrærast í miðju Interneti hlutanna í gegnum tíðina með sérhæfðum lausnum sem mæla t.d. hitastig, þrýsting, sýrustig, vindhraða og vatnsmagn svo eitthvað sé nefnt. Má segja að Vista hafi í raun verið að vinna í Interneti Hlutanna áður en það varð jafn almennt í umræðunni og það er nú.
Hugbúnðarlausn Vista (Vista Data Vision) getur tekið við gögnum frá mörgum mismunandi skynjurum eða mælitækjum frá flestum framleiðendum. Þannig er tryggt að fyrirtæki hafi aðgang að öllum þessum gögnum á miðlægum stað og að heildaryfirsýn sé tryggð. Fyrirtæki geta þannig brugðist hratt og örugglega við ef upp koma t.d. bilanir eða orku- eða vatnsnotkun hefur aukist verulega. Þannig má koma í veg fyrir t.d. orkusóun eða leka í vatnskerfum og spara stórar fjárhæðir auk þess að öll heildarsýn verður skýrari og gagnsærri.
Heiðar Karlsson
Forstöðumaður Viðskiptaþróunar
heidar@vista.is