| Fjargæsla og veitur
Verkfræðistofan Vista hefur áralanga reynslu í fjargæslukerfum og hefur til þess besta
fáanlega búnað. Verkefni Vista á þessu sviði eru um allt land.
Fjargæsla er það kallað þegar tækjum og búnaði er stýrt úr fjarlægð, hvort sem það er með
hugbúnaði á tölvu, eða í gegnum vefsíðu. Með fjargæslukerfi má draga saman á einn stað
eftirlit og stýringar, einfalda vinnuna og lækka allan umsýslukostnað.
Fjargæsla er einnig notað um sjálfvirk mælikerfi sem mæla í sífellu og skrá mælingar með
reglulegu millibili. Gagnaþjónustan sækir mæligögn reglulega í mælistöðina og skráir hjá
sér, og gerir mæligögnin aðgengileg notendum.
|