Fjarskipti

Fjarskipti eru lífæð allra mælikerfa. Mæligögn geta farið með ýmsum hætti frá mælikerfi til miðstöðvar.

Vista hefur unnið með allar helstu fjarskiptaleiðir:

- Ethernet netkerfi fyrir fjarskipti á eigin svæði
- Leigulína símafélags, sem krefst staðlaðs módems
- Eigin leigulína sem gefur kost á straumlykkjumódemum
- ADSL netsamband sem tengir saman búnað á stóru svæði
- Upphringisamband um línu eða GSM, þar sem hringt er í hverju sinni
- GPRS farsímasamband sem er alltaf opið