Síðan 1984 hefur Verkfræðistofan Vista annast ótölulegan fjölda verkefna fyrir fjölda
viðskiptavina um land allt. Hér verður aðeins nefnd nokkur slík verkefni, sem lýsa
fjölbreytileika þeirra:
* Gatnamálastjórinn í Reykjavík og fleiri: Eftirlit með fráveitukerfi höfuðborgarsvæðisins.
* Vegagerðin: Hugbúnaðarkerfi sem sækir upplýsingar í sjálfvirkar veðurstöðvar um land allt.
* Orkustofnun: Hugbúnaðarkerfi sem sækir upplýsingar í sjálfvirkar vatnshæðarmæla um land
allt, og birtir mælingar á vefnum.
* Vatnsveita Mosfellsbæjar og fleiri vatnsveitur: Sjálfvirkt eftirlitskerfi á
kaldavatnsnotkun, sem hentar m.a. fyrir lekaleit og dægursveiflur.
* Jarðboranir: Mælikerfi í borana Sleipnir og Jötunn, sem skráir allar upplýsingar um
gang borana.
* Silfurtún hf: Sjálfvirkni og vélarafmagn á iðnaðarvélar.
* Fjölblendir ehf: Mælikerfi sem mælir m.a. þrýsting og hita inni í strokk lítils mótórs.
Mælt er á 1 gráðu fresti (360 mælingar á hverjum hring) óháð snúningshraða.
* Fræðslumiðstöð Reykjavíkur: Orkueftirlit í skólum.
* Borgarleikhúsið: Stjórnkerfi fyrir hringsvið og flugkerfi.
* Ratsjárstofnun: Sjálfvirkar veðurstöðvar og hugbúnaður í ratsjárstöðvar.
* Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli: Orkueftirlit.